Heimaey fasteignasala kynnir skemmtilega 3ja herbergja íbúð að Áshamri 65 2.h.h. Eignin er 85,9 m2 að stærð þar af 5,8 m2 sérgeymsla í kjallara, og hlutdeild í sameign, þ.m.t. þvottahús. Sameign ný máluð og til fyrirmyndar. Nýlegt þak er á fjölbýlishúsinu. Um er að ræða efsta stigahús í vesturblokkinni, og því er útsýnið frábært, ekkert sem skyggir á til vesturs. Gluggar með svalarhurð þarfnast skoðunar. Stórt bílastæðaplan austan við eignina.Eignin telur: Anddyri, nýtt plastparket á gólfi
Hol, nýtt plastparket á gólfi
Eldhús, nýlökkuð innrétting, flísar á milli skápa, nýtt plastparket á gólfi.
Herbergi 1, parket á gólfi, skápur
Herbergi 2, parket á gólfi, stórir skápar
Snyrting, góð neðri skápa innrétting með innbyggðum vaksi, ljósaspegill, flísar á gólfi og gafli baðkars. Baðkar/sturta, handklæðagrind
Stofa, parket á gólfi, nýlegur sólbekkur. Útgangur á vestur svalir, með stórkostlegu útsýni
Þvottahús í sameign.
Geymsla, sér geymsla í kjallara.
Eign á frábærum stað með stórkostlegu útsýni til vesturs. Sjón er sögu ríkari