Heimaey fasteignasala kynnir einbýlishús á 3 hæðum að Skólaveg 45, VM. Eignin er 165.1 m2 timburhús en gólfflötur er meiri þar sem hluti eignar er undir súð. Eign á frábærum stað, byggð árið 1920. Afgirtur pallur fyrir framan hús. Drenað hefur verið með eigninni sunnan , austan og norðan megin.
Eignin telur: Aðalhæð:Anddyri, flísar á gólfi, viðarklæðning í lofti.
Hol, parket á gólfi
Snyrting, ágæt innrétting með ljósakappa, nuddsturtuklefi, handklæðaofn, dúkur á gólfi.
Eldhús, góð innrétting, parket á gólfi, flísar á milli skápa, loftaklæðning.
Stofa, parket á gólfi, viðarklæðning í lofti.
Ris, góður stigi með timburtröppum úr anddyri uppí ris.Herbergi 1, nýtt plastparket á gólfi, nýr ofn, skápar með hillum og hengi.
Herbergi 2, parket á gólfi, góð geymsla/leiksvæði undir súð.
Herbergi 3, nýtt plastparket á gólfi, nýr ofn, geymsla undir súð.
Kjallari, málaðar steintröppur úr anddyri niður í kjallara.Þvottahús, stórt og gott með útgangi til norðurs.2 geymslurými í kjallara með gott hillupláss.
Herbergi 4, nýtt plastparket á gólfi, nýr ofn, allt tekið í gegn 2018.
Skólp myndað í nóvember 2018.
Þak þarfnast málunar. Klæðning þarfnast skoðunar.
Eign sem kemur á óvart, er á góðum stað, stutt í skóla og leikskóla.