VERÐ: TILBOÐHeimaey fasteignasala kynnir stórglæsilega 3ja herbergja íbúð í hjarta miðbæjarins, á 2. hæð í lyftuhúsi að Vesturvegi 5, Vm. Eignin er að heildarstærð 104,5 m2, og þar af er sérgeymsla í kjallara 4,4 m2 . Auk þess fyligir bílastæði (25,6 m2 nettó) í bílakjallara merkt: 01B05, ásamt hlutdeild í sameign. Eignin er byggð úr steini árið 2008. Svalir til vesturs og norðurs, samtals 15,2 m2. Nýjar gúmmimottur á gólfi svala. Eignin er klædd að utan með flísum og áli. Gólfhiti er í allri eigninni. Bílageymsla, nýtt epoxy á gólfi. Sérgeymslur í kjallara og einnig er m.a. hjólageymsla í sameign. Sameign einstaklega snyrtileg og rúmgóð. Eigninni hefur verið haldið einstaklega vel við og nú síðast voru eldhústæki endurnýjuð. Inngangur í íbúð er stutt frá lyftu og stigagangi. Myndavéla dyrasími við útidyr og í sameigilegum gangi á jarðhæð.
Eignin telur:Anddyri, fallegar flísar á gólfi, góðir fataskápar
Hol, flísar á gólfi
Þvottahús/geymsla, góð innrétting með innbyggingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur, rafmangstafla. Flísar í hólf og gólf.
Herbergi 1, harðparket á gólfi, góðir skápar
Herbergi 2, harðparket á gólfi, góðir skápar
Snyrting, glæsileg innrétting með kappalýsingu, baðkar/sturta, upphengt WC, flísar í hólf og gólf
Eldhús, glæsileg innrétting með eyju út á gólfi. Nýleg eldhústæki, flísar á gólfi. Opið inn í stóra og rúmgóða stofu.
Stofa, stór og björt stofa með harðparket á gólfi. Útgangur á svalir til vesturs og norðurs. Góðir gluggar sem gera íbúðina enn bjartari.
Geymsla, sérgeymsla í kjallara 4,4 m2.
Bílastæði í bílakjallara 25,6 m2 nettó merkt: 01B05. Nýtt epoxy á gólfi
Einstaklega glæsileg eign í hjarta miðbæjarins. Stutt í alla þjónustu. Tvennar svalir og því hægt að taka miðbæjarpúlsinn úr mörgum áttum.
Það er ekki oft sem svona glæsieign í miðbænum kemur á sölu. Sjón er sögu ríkari.