Heimaey fasteignasala kynnir fallegt einbýlishús á einni hæð að Faxastíg 23 Vm. Eignin er 179,8 m2 að stærð skv. FMR, og þar af er bílskúr 29,8 m2 . Eignin er byggð úr steini árið 1986. Eign á frábærum stað við einstefnugötu. Eignin hefur töluvert verið endurnýjuð, þar m.t. skipt um þakefni og nýlegur þakkassi. Einstaklega fallegur bakgarður. Sólpallur til suðurs, og falleg lóð byggð í náttúrulegt umhverfi. Gosbrunnstenging í lóð. Í eigninni eru þrjú herbergi, þar af eitt nett sem hægt væri að stækka. Á upphaflegri teikningu er fjórða svefnherbergið sem hefur verið nýtt til að stækka þvottahús og því hægt að bæta við einu herbergi. Eignin telur:Anddyri, flísar á gólfi, góðir skápar
Hol, harðparket á gólfi
Eldhús, stór og góð innrétting með flísum á milli skápa. Flísar á gólfi, klæðning í lofti
Herbergi 1, harðparket á gólfi, klæðning í lofti
Sjónvarpshol (fjölnota rými), harðparket á gólfi, klæðning í lofti
Stofa, stór og góð með útgang á sólpall til suðurs, klæðning í lofti
Herbergi 2, nett herbergi, harðparket á gólfi. Hægt að stækka þetta herbergi inn í stofu
Snyrting, stór og góð, góð innrétting með kappaljósi, sturtuklefi, baðkar, skápur. Flísar á gólfi og upp á veggi. Klæðning í lofti
Herbergi 3, harðparket á gólfi, klæðning í lofti
Þvottahús með útgang í austur. FLísar á gólfi, góðir skápar/innrétting með vaski.
Bílskúr, st
ór og góður bílskúr, geymsluloft til suðurs sem hægt væri að stækka. Veggskápar og innréttingar. Innfrarauður Saunaklefi sem fylgir með. Gönguhurð úr bílskúr út á baklóð.
Nýr bílskúrshurðaopnari, rafmagn, heitt og kalt vatn.
Skemmtileg eign á frábærum stað við einstefnugötu. Eign við rætur miðbæjar