VERÐ: TILBOÐ - seljendur skoða öll tilboðHeimaey fasteignasala kynnir glæsilegt og mikið endurnýjað raðhús að Áshamri 51, Vestmannaeyjum. Eignin er 148,2 m2 að stærð skv. FMR. þar af er bílskúr 27,3 m2. Eignin er byggð úr steini ári 1979. Einstaklega falleg eign í botnlangagötu. Eldhús, snyrting og bílskúr hafa verið endurnýjuð alveg. Hiti í gólfum í eldhúsi og snyrtingu. Ný hitagrind. Einnig eru allar neysluvatnslagnir nýjar. Nýtt exoxy á bílskúrsgólfi o.m.fl. Ísskápur í bílskúr og eldhúsborð fylgja með. Eignin telur: Anddyri, flísar á gólfi, skóskápur
Hol, flísar á gólfi
Herbergi 1, plastparket á gólfi, klæðning í lofti
Gangur v/svefnálmu, góður skápur, plastparket á gólfi
Herbergi 2, plastparket á gólfi, klæðning í lofti
Herbergi 3, plastparket á gólfi, skápur, klæðning í lofti
Hol / sjónvarpshol, flísar á gólfi, hvíttaður viður í lofti
Geymsla, gott geymslurými milli svefnherbergis og snyrtingar. Gengið úr holi í rýmið.
Snyrting, glæsileg innrétting upp í loft, kappalýsing, hornbaðkar með nuddi, sturtuklefi, handklæðaofn, upphengt WC, innfelld lýsing, flísar í hólf og gólf
Eldhús, glæsileg innrétting, borplata úr kvarts steini, og glansborðplötur á milli skápa. Lýsing undir efri skápum, flísar á gólfi
Stofa, stór og góð stofa, viðarparket, hvíttaður viður í lofti. Útgangur á austurlóð
Herbergi 4, stórt og gott með góðum skápum, viðarparket á gólfi, klæðning í lofti
Gangur úr holi inn í bílskúr, þar sem jafnframt er þvottaaðstaða. Fatahengi í ganginun.
Bílskúr, stór og góður bílskúr. Nýtt epoxy á gólfi. Þvotta aðstaða þar sem þvottavél og þurrkari er í vinnu hæð, stjórir og góðir skápar, bílskúrshurðaopnari, rafmagn, heitt og kalt vatn. Innan- og utangengt í bílskúr. Lúga upp á einangrað geymsluloft, fellistigi. Hellulagt plan fyrir framan bílskúr. Glæsilegt raðhús á frábærum stað. Sjón er sögu ríkari