Heimaey fasteingasala kynnir glæsilega og mikið endurjýjaða 2ja herbergja íbúð að Foldahrauni 38 merkt D, 900 Vm. Eignin er 67,8 m2 að stærð skv. FMR, þar af er sérgeysla í kjallara 7,2 m2 og sorpgeymsla 1,8 m2. Eignin hefur mikið verið endurnýjuð og breytt og einnig er kominn nýr stór afgirgtur sólpallur á vesturlóð, með útgang úr stofu. Nýir gluggar í svefnherbergi og anddyri.
Glæsileg snyrting með öllu, glæsisleg eldhúsinnrétting, nýleg gólfefni. Eigendur opnuðu úr anddyri inn í hol og því eru stórir skápar í holi. Búið að helluleggja lóð sunnan við inngang í eignina.
Eignin telur:Anddyri, nýlegar flísar á gólfi
Hol, nýlegt harððarket á gólfi, stórir og góðir skápar
Stofa, harðparket á gólfi, útgangur á nýjan afgirtan, sólríkan sólpall til vesturs og suðurs.
Svefnherbergi, harðparket á gólfi
Eldhús, glæsileg innrétting með flísum á milli skápa. Harðparket á gólfi
Snyrting, allt nýtt, glæsileg neðri skúffu innrétting með spegli/ljósi, Walk in sturtuklefi, handklæðaofn, upphengt WC, þvottaaðstaða, flísar í hólf og gólf
Geymsla, sérgeymsla í kjallara
Nýlegur, stór, afgirtur og sólríkur sólpallur til suðurs og vesturs.
Glæsileg eign á frábærum stað. Mikið endurnýjuð eign og mest allt nýtt í eigninni.
Sjón er sögu ríkari